Baráttan við sandinn

Heimildarmynd · Í þróun

Baráttan við sandinn

Í Þorlákshöfn, þar sem svartur sandur þekur náttúrunna og lítið er um gróður, reis óvænt golfvöllur þrátt fyrir mikla erfiðleika. Saga golfvallarins er sögð með því að flétta saman fortíð og nútíma, þar sem saga Þorlákshafnar endurspeglast í uppbyggingu hans.

UM VERKEFNIÐ

Heimildarmyndin Baráttan við sandinn fjallar um uppbyggingu Þorlákshafnar og golfvallarins þar, sem reistur var á svörtum sandi. Myndin dregur fram þær áskoranir sem fylgdu uppbygginguni, bæði tæknilegar og náttúrulegar. Hvernig samfélagið og einstaklingar þurftu að takast á við sandinn og aðra erfiðleika. Í gegnum sögur fólks sem tengdist verkefninu kynnist áhorfandinn bæði persónulegum og samfélagslegum áhrifum uppbyggingarinnar. Heimildarmyndin varpar þannig ljósi á hugrekki, samvinnu og sköpunargáfu þeirra sem unnu að þessu verkefni og sýnir hversu flókið það var að byggja upp við óhefðbundnar og krefjandi aðstæður. Leikurinn er ekki bara leikur heldur miklu meira en það. Saga golfsins byrjaði á almenningslandi, landi sem lítið var um græðslu og bændur vildu hvorki nýta né hafa. Í því samhengi fær leikurinn annan tilgang en oft er talað um í dag. Tilgangurinn verður þá ekki aðeins að spila golf, heldur einnig að græða upp land og vinna með svæði sem annars væri lítið nýtt. Áður en golfvöllurinn reis á svæðinu var Þorlákshöfn þekkt fyrir sandfok og sjávarútveg. Í hvassviðri gat sandurinn rignt yfir hús og götur, og þakið bæinn á augabragði. En með þrautseigju, samvinnu og markvissri landgræðslu fór landslagið smám saman að breytast. En stríðið er ekki búið. Baráttan heldur áfram og sandurinn er enn hluti af veruleika svæðisins. Þrátt fyrir uppbyggingu og breytingar má enn sjá áhrif hans í umhverfinu og í daglegu lífi. Við fylgjumst með starfsfólki golfvallarins í Þorlákshöfn við undirbúning tímabilsins. Myndin sýnir dagleg störf þeirra og áskoranirnar sem fylgja því að halda vellinum lifandi, þar sem samvinna og útsjónarsemi móta leikvöll sem gestir geta notið. Í höfuðborginni er oft litið niður á golfvelli vegna skorts á húsnæði og þeir stundum taldir taka pláss sem annars gæti nýst undir byggð. Í Þorlákshöfn er þetta hins vegar allt annað mál. Í þessu samhengi er golfvöllurinn ekki vandamál, heldur hluti af lausninni. Í gegnum flott visuals og viðtöl við aðstandendur fáum við skýra mynd af sögunni á bak við uppbyggingu vallarins. Ásamt því er nýtt efni frá sjötta og sjöunda áratugnum, til dæmis gamlar sjónvarpsfréttir og ljósmyndir af uppbyggingu bæjarins. Þar má sjá hvernig bærinn var að mótast á þessum tíma og hvernig aðstæður voru í kringum uppbygginguna. Einnig verða sagðar sögur frá bæjarbúum, sérstaklega eldri íbúum sem muna þessa tíma og geta sagt frá reynslu sinni og minningum. Saga vallarins endurspeglar því sögu bæjarins. Frá svartri eyðimörk, yfir í skipulagðar holur og græna teiga.

ÚR VERKEFNI

Baráttan við sandinn — mynd 1
Baráttan við sandinn — mynd 2
Baráttan við sandinn — mynd 3
Baráttan við sandinn — mynd 4

Hlutverk Valhalla Films

Frá hugmynd að lokaafurð.

FRAMLEIÐSLA

Eyþór Brynjólfsson

LEIKSTJÓRN

Hörður Skúlason

KVIKMYNDATAKA

X

KLIPPING

X

LITAGREINING

X

HLJÓÐVINNSLA

X

Áhugasöm?

Segðu okkur frá næsta verkefni.

Hafa samband